Persónuvernd
Útgáfa 2. Gildir frá 06.11.2026.
Hér er útskýrt hvaða upplýsingum við söfnum þegar þú kaupir miða eða skráir þig á viðburð, til hvers við notum þær, hve lengi við geymum þær og hvaða rétt þú átt.
1. Hver ber ábyrgð
Ábyrgðaraðili upplýsinga sem safnað er í miðasölunni er Pareto lausnir ehf., kennitala 450324-0270. Heimilisfang: Barmahlíð 7, 550 Sauðárkrókur, Ísland.
Tengiliður vegna persónuverndar er kristofer@paretolausnir.is. Netfang: kristofer@paretolausnir.is.
2. Hvaða upplýsingum við söfnum og til hvers
Nafn og netfang kaupanda. Til að senda þér miða og kvittun, láta þig vita ef viðburður breytist og finna pöntunina við innganginn. Grundvöllur: nauðsynlegt til að efna samning um miðakaup.
Símanúmer, þegar beðið er um það. Til að ná í þig með stuttum fyrirvara ef viðburður fellur niður eða breytist. Grundvöllur: nauðsynlegt til að efna samning um miðakaup.
Pöntunin. Viðburður, miðategundir, fjöldi, upphæð, tími, pöntunarnúmer og staðfesting greiðslu. Til að afgreiða kaupin, endurgreiða ef við á og færa bókhald. Grundvöllur: samningur um miðakaup og lagaskylda samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.
Staðfesting þín á skilmálum. Hvaða útgáfu skilmálanna þú samþykktir og hvenær. Til að geta sýnt fram á hvaða skilmálar giltu um kaupin. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir.
Hvenær miðinn var skannaður við innganginn. Til að hleypa inn réttum fjölda gesta og koma í veg fyrir að sami miði sé notaður tvisvar. Grundvöllur: nauðsynlegt til að efna samning um miðakaup.
Svör við aukaspurningum í kaupforminu, ef einhverjar eru. Til dæmis um aðgengisþarfir, til að undirbúa komu þína. Grundvöllur: samþykki þitt. Þú ræður hvort þú svarar valfrjálsum spurningum.
Tæknilegar upplýsingar til varnar misnotkun. Dulkóðað fingrafar af IP-tölu, en IP-talan sjálf er ekki geymd. Til að koma í veg fyrir að sjálfvirk forrit taki frá miða eða trufli miðasöluna. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir okkar og annarra gesta.
Nafn og netfang gesta sem fá boðsmiða. Til að senda miðann. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir.
Tölvupóstur og önnur skilaboð sem þú sendir okkur. Til að svara þér. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir.
Við biðjum ekki um kennitölu við miðakaup nema það komi skýrt fram í kaupforminu.
Nafn og netfang eru nauðsynleg til að við getum selt þér miða. Án þeirra er ekki hægt að ljúka kaupum.
Engar ákvarðanir um þig eru teknar sjálfvirkt og við búum ekki til persónusnið.
3. Greiðslur og kortaupplýsingar
Greiðslan fer fram á greiðslusíðu greiðslumiðlunarinnar. Þú slærð greiðsluupplýsingarnar inn þar og við fáum þær aldrei. Við sendum greiðslumiðluninni aðeins það sem hún þarf til að taka við greiðslunni, svo sem upphæð og tilvísunarnúmer pöntunarinnar. Greiðslumiðlunin ber sjálf ábyrgð á meðferð greiðsluupplýsinga samkvæmt eigin persónuverndarstefnu.
4. Hverjir fá aðgang að upplýsingunum
Ég og þeir sem ég fæ til að sjá um miðasölu og móttöku gesta.
Pareto lausnir ehf. rekur sjálft miðasölukerfið.
Þjónustuaðilar sem Pareto lausnir notar við hýsingu vefs og gagnagrunns, tölvupóstsendingu, SMS-sendingu (Áminna og Twilio) og varnir gegn misnotkun. Listi með nöfnum þeirra fæst sé þess óskað.
Greiðslumiðlunin Rapyd, sem persónuupplýsingum er deilt með vegna greiðslunnar. Hún starfar samkvæmt eigin samningi við Pareto lausnir og ber sjálf ábyrgð á sinni vinnslu.
Við seljum aldrei upplýsingar um gesti og afhendum þær ekki öðrum til markaðssetningar.
5. Flutningur út fyrir Evrópska efnahagssvæðið
Upplýsingarnar eru geymdar innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). SMS-skeyti eru send um Twilio á Írlandi og þaðan til símafyrirtækja, sem geta unnið þau utan EES samkvæmt eigin reglum. Starfsfólk Twilio utan ESB getur fengið aðgang að gögnunum vegna bilanaleitar eða þjónustu. Sumir þjónustuaðilanna eru í eigu félaga utan EES. Komi til flutnings út fyrir EES byggir hann á ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um fullnægjandi vernd eða á stöðluðum samningsskilmálum.
6. Hve lengi við geymum upplýsingarnar
Pöntun og kvittun (upphæð, dagsetning, pöntunarnúmer og miðategundir) í sjö ár frá lokum reikningsárs, eins og lög nr. 145/1994 um bókhald kveða á um.
Nafn, netfang og sími á pöntun með pöntuninni, í allt að sjö ár frá lokum reikningsárs.
Pantanir sem ekki var lokið við að greiða eru geymdar jafn lengi og aðrar pantanir.
Svör við aukaspurningum er eytt sjálfkrafa 365 dögum eftir viðburð.
Dulkóðuðu fingrafari af IP-tölu er eytt sjálfkrafa innan sólarhrings.
Tölvupóstur sem þú sendir okkur er geymdur eins lengi og þörf er á til að svara erindinu.
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og fá afrit af þeim,
fá rangar upplýsingar leiðréttar,
fá upplýsingum um þig eytt,
biðja um að vinnsla sé takmörkuð eða andmæla henni,
fá upplýsingarnar afhentar á tölvulesanlegu sniði,
draga til baka samþykki sem þú hefur gefið, til dæmis fyrir svörum við aukaspurningum.
Sendu beiðni á kristofer@paretolausnir.is. Við svörum innan mánaðar. Við gætum þurft að biðja þig um að staðfesta hver þú ert, til dæmis með því að svara úr netfanginu sem miðarnir voru keyptir á.
Biðjir þú um eyðingu afmáum við nafn, netfang, síma og önnur auðkenni af pöntunum þínum. Upphæð og dagsetningu pöntunar geymum við áfram, án tengingar við þig, því lög um bókhald krefjast þess.
Teljir þú að við förum ekki rétt með upplýsingar um þig getur þú kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is, netfang postur@personuvernd.is.
8. Börn
Miðasalan er ætluð fullorðnum. Við biðjum ekki um upplýsingar um börn.
9. Vefkökur og mælingar
Á kaupsíðum miðasölunnar eru engar auglýsinga- eða mælingakökur.
Vefurinn notar eingöngu kökur sem eru nauðsynlegar til að hann virki, til dæmis til að halda sætum frá meðan þú lýkur kaupum.
Við teljum heimsóknir á síður vefsins án þess að tengja þær við þig.
Greiðslusíða greiðslumiðlunarinnar notar sínar eigin kökur.
10. Tölvupóstur frá okkur
Við sendum þér aðeins póst sem tengist kaupunum: kvittun, miða, áminningu fyrir viðburð og tilkynningu ef viðburður breytist eða fellur niður. Við sendum ekki fréttabréf eða auglýsingar nema þú hafir skráð þig sérstaklega á póstlista.
11. Öryggi
Öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð. Aðeins þeir sem sjá um miðasölu og móttöku gesta hafa aðgang að pöntunum og gestalista. Kortaupplýsingar eru aldrei geymdar hjá okkur. Verði öryggisbrestur sem líklegt er að hafi áhrif á þig látum við þig og Persónuvernd vita eins og lög kveða á um.
12. Breytingar
Við uppfærum þessa stefnu þegar vinnslan breytist. Nýjasta útgáfan er alltaf á þessari síðu og dagsetningin efst sýnir frá hvaða degi hún gildir.
Um kaup á miðum gilda skilmálar miðasölu.
Viðskiptavinir ehf og fyrirspurnir
Þegar þú sendir fyrirspurn eða gerist áskrifandi vinnur Pareto lausnir nafn, netfang, félag og samskipti til að svara þér og veita þjónustuna. Grundvöllur vinnslunnar er samningur eða ósk þín um hann. Upplýsingunum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf, nema bókhaldslög krefjist varðveislu í sjö ár.
Innskráning með Google
Þegar þú skráir þig inn með Google fær Pareto lausnir netfang þitt og nafn frá Google. Þau eru aðeins notuð til að skrá þig inn og stofna aðganginn og eru aldrei seld.
Innskráning með SMS
Korthafar geta beðið um einnota innskráningarkóða í SMS. Þá er símanúmer korthafa notað til að senda kóðann og það fer, ásamt kóðanum, um SMS-þjónustuna Áminnu og Twilio á Írlandi. Grundvöllur vinnslunnar er samningur við korthafa.
Pareto lausnir sem vinnsluaðili
Fyrir vefi sem nota ehf er Pareto lausnir vinnsluaðili og eigandi vefsins ábyrgðaraðili. Um það gildir vinnslusamningur.