Fara beint í meginmál

Endurgreiðslustefna

Hvenær og hvernig Pareto lausnir endurgreiðir.

Áskriftir að ehf

  • Áskrift er greidd mánaðarlega fyrirfram. Við uppsögn er ekki endurgreitt fyrir mánuð sem er hafinn.

  • Hafi verið rukkað ranglega eða tvisvar endurgreiði ég mismuninn innan 14 daga.

  • Liggi þjónustan niðri í meira en 24 klukkustundir samfellt vegna atvika sem Pareto ber ábyrgð á getur áskrifandi óskað eftir hlutfallslegri endurgreiðslu.

Miðar á viðburði

Um endurgreiðslu miða gilda skilmálar miðakaupa. Falli viðburður niður er miðinn endurgreiddur að fullu.

Réttur neytenda

Neytendur eiga 14 daga rétt til að falla frá samningi í fjarsölu samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga, nema þjónustan sé hafin að beiðni þeirra. Rétturinn á ekki við um miða á viðburði á tilteknum degi.

Hvernig óskað er eftir endurgreiðslu

Sendu póst á kristofer@paretolausnir.is. Endurgreitt er á sama greiðslukort og greitt var með, eða með millifærslu hafi verið greitt með reikningi.