---
title: "Verkefni"
url: https://paretolausnir.is/verkefni
type: sida
locale: is
published: 2026-10-22
updated: 2026-11-06
source: ehf
---

Auk ehf hef ég smíðað og rek þessar vörur. Þær eru allar á íslensku og opnar öllum.

![Yfirlit í stjórnborði ehf með miðasölu, flettingum, áskrifendum og innsendingum](/merki/pareto/verkefni/ehf-yfirlit.webp)

### ehf vefumsjónarkerfið

Íslenskt vefumsjónarkerfi fyrir félög, stofnanir og fyrirtæki. Vefur, miðasala, eyðublöð og kosningar á einum stað.

Ritillinn sýnir síðuna eins og hún birtist, og þú kveikir aðeins á því sem þú þarft.

- [Skoða ehf](/ehf)

![Forsíða qrkodi.is þar sem QR-kóði verður til úr vefslóð](/merki/pareto/verkefni/qrkodi-forsida.webp)

### qrkóði.is

Ókeypis QR-kóðar á íslensku sem renna aldrei út. Kóðinn verður til í vafranum þínum og ekkert fer á þjón.

Í áskrift fást kóðar sem má breyta eftir á, og kóðagerðin felld inn á eigin vef.

- [Opna qrkodi.is](https://qrkodi.is)

![Forsíða Boltamóts með næsta leik liðsins í síma](/merki/pareto/verkefni/boltamot-heimaskjar.webp)

### Boltamót

Mótakerfi fyrir íþróttamót barna og ungmenna. Foreldrar fylgjast með sínu liði án innskráningar.

Næsti leikur er alltaf efst, með velli og tíma, og tilkynning berst um leið og leiktími breytist.

- [Opna boltamot.is](https://boltamot.is)

![Forsíða Klárara með námsleikjum flokkuðum eftir aldri](/merki/pareto/verkefni/klarari-leikir.webp)

### Klárari

Íslenskir námsleikir fyrir börn 3 til 15 ára. Börnin læra með því að leika sér, án auglýsinga og án kaupa.

Hvert barn fær sinn prófíl og foreldrar sjá hvernig gengur.

- [Opna klarari.is](https://klarari.is)

Viltu ræða lausn fyrir þitt félag?

- [Panta kynningu](/f/panta-kynningu)
