---
title: "Endurgreiðslustefna"
url: https://paretolausnir.is/endurgreidslur
type: sida
locale: is
published: 2026-10-22
updated: 2026-11-06
source: ehf
---

Hvenær og hvernig Pareto lausnir endurgreiðir.

## Áskriftir að ehf

- Áskrift er greidd mánaðarlega fyrirfram. Við uppsögn er ekki endurgreitt fyrir mánuð sem er hafinn.
- Hafi verið rukkað ranglega eða tvisvar endurgreiði ég mismuninn innan 14 daga.
- Liggi þjónustan niðri í meira en 24 klukkustundir samfellt vegna atvika sem Pareto ber ábyrgð á getur áskrifandi óskað eftir hlutfallslegri endurgreiðslu.

## Miðar á viðburði

Um endurgreiðslu miða gilda [skilmálar miðakaupa](/skilmalar). Falli viðburður niður er miðinn endurgreiddur að fullu.

## Réttur neytenda

Neytendur eiga 14 daga rétt til að falla frá samningi í fjarsölu samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga, nema þjónustan sé hafin að beiðni þeirra. Rétturinn á ekki við um miða á viðburði á tilteknum degi.

## Hvernig óskað er eftir endurgreiðslu

Sendu póst á [netfang á síðunni]. Endurgreitt er á sama greiðslukort og greitt var með, eða með millifærslu hafi verið greitt með reikningi.

Tengiliðaupplýsingar eru á síðunni: https://paretolausnir.is/endurgreidslur